Arnar Geir fór með sigur af hólmi í Kaffi Króks mótaröðinni
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
26.04.2023
kl. 11.24
Kaffi Króks-mótaröð Pílukastfélags Skagafjarðar lauk í gærkvöld en pílum var kastað af miklum móð ein átta þriðjudagskvöld en fyrsta mótið fór fram um miðjan febrúar. Fyrsta sætið á mótinu hreppti Arnar Geir Hjartarson með 118 stig, Þórður Ingi Pálmarsson varð annar með 115 stig og þriðji Pálmar Ingi Gunnarsson en hann náði í 77 stig. Þeir fengu allir vegleg verðlaun í boði Kaffi Króks.
Meira
