Þrjú skagfirsk ræktunarbú tilnefnd til heiðursviðurkenningar

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 71 bús sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu og í ljósi afar magnaðs árangurs hjá mörgum búum var ákveðið að tilnefna 16 bú í ár. Þrjú búanna eru úr Skagafirði.

Tilnefnd bú munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2016 sem haldin verður í Samskipahöllinni í Spretti laugardaginn 5. nóvember næstkomandi en ræktunarbú ársins verður svo verðlaunað á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum um kvöldið.

Þrjú bú innan félagssvæðis Skagfirðings eru tilnefnd: Hof á Höfðaströnd, Lilja Sigurlína Pálmadóttir og Baltasar Kormákur; Prestsbær, Inga Jenssen og Ingar Jenssen og Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth.

Í stafrófsröð eru tilnefnd bú:

Árbæjarhjáleiga II, Kristin Guðnason, Marjolijn Tiepen og fjölskylda

Berg, Anna Dóra Markúsardóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson 

Efsta-Sel, Daníel Jónsson og Hilmar Sæmundsson 

Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius

 

Hamarsey, Hannes Sigurjónsson og Inga Cristina Campos 

Hof á Höfðaströnd, Lilja Sigurlína Pálmadóttir og Baltasar Kormákur 

Hvolsvöllur, Ásmundur Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir 

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble

 

Kirkjubær, Ágúst Sigurðsson, Unnur Óskardsóttir og fjölskylda 

Kjarnholt I, Guðný Höskuldsdóttir og Magnús Einarsson 

Koltursey, Elías Þórhallsson, Pétur Jónsson og fjölskyldur 

Prestsbær, Inga Jenssen og Ingar Jenssen

 

Rauðalækur, Eva Dyröy og Guðmundur Friðrik Björgvinsson 

Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir 

Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson 

Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir