3 íþróttamenn af norðurlandi vestra í landsliðinu í frjálsum
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla
28.03.2011
kl. 09.01
Þrír íþróttamenn af Norðurlandi vestra eru í landsliðshópi Frjálsíþróttasambands Íslands en það eru þau Gauti Ásbjörnsson, íslandsmeistari í Stangastökki, Björn Margeirsson, millivegalengdahlaupari, og Helga Margrét Þorsteinsdóttir tugþrautakona.
Munu þau skipa landsliðshópinn þetta árið en hópurinn verður endurskoðaður tvisvar yfir árið.
