Augnablik lagði lið Húnvetninga
Í gær lék lið Kormáks Hvatar leik númer tvö í Lengjubikarnum á þessu undirbúningstímabili en þá urðu Húnvetningar að sætta sig við naumt 3-2 tap gegn liði Augnablika. Á Aðdáendasíðunni segir að sem fyrr sé liðið skipað kornungum leikmönnum heimanað, sem eru að sýna á sér mjög efnilegar hliðar í þessum leikjum.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Húnaþing vestra | Hátíðahöld á sumardaginn fyrsta 2026
Á vef Húnaþings vestra má lesa: „Allt frá árinu 1957 hefur sumardagurinn fyrsti verið haldinn hátíðlegur í Húnaþingi vestra. Upphaflega var hátíðin haldin til fjáröflunar Fegrunarfélagsins fyrir gróðursetningu í sjúkrahúsgarðinum á Hvammstanga. Í dag er sá garður orðinn stór og þéttur skógur. Þó hátíðin hafi ekki verið með nákvæmlega sama sniði öll þessi ár hefur Vetur konungur þó alltaf afhent Sumardísinni veldissprotann og hafa þau verið klædd í búningana sem forvígiskonur hátíðarinnar saumuðu. Frá upphafi og til ársins 2022 hélt Ingibjörg Pálsdóttir (Lilla) utan um hátíðarhöldin með aðstoð fjölskyldu sinnar og ýmissa félagasamtaka. Í ár ákvað starfsmannafélag leikskólans að taka þetta að sér og viljum við þakka þeim innilega fyrir að viðhalda þessum flotta og rótgróna viðburði í samfélaginu okkar.Meira -
Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Fornverkaskólinn í Skagafirði hefur hlotið Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem eru virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu. Verðlaunin eru veitt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Europa Nostra með stuðningi úr Menningaráætlun ESB. Að þessu sinni hlutu 30 verkefni frá 18 löndum viðurkenningu, en alls barst 261 umsókn frá 40 löndum.Meira -
Opið vísindahús Háskólalestarinnar sló í gegn á Sauðárkróki
Opið vísindahús Háskólalestar Háskóla Íslands sem haldið var í Árskóla á Sauðárkróki laugardaginn 18. apríl var afar vel heppnað. Hátt í þúsund gestir lögðu leið sína á staðinn og nutu fjölbreyttrar dagskrár þar sem vísindi voru kynnt á lifandi, aðgengilegan og skemmtilegan hátt fyrir fólki á öllum aldri. haskolalestin.hi.is segir frá:Meira -
Unglingalandsmót UMFÍ verður á Króknum um verslunarmannahelgina
Skrifað hefur verið undir samning um Unglingalandsmót UMFÍ sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Gunnar Þór Gestsson formaður UMss og Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ sjást hér undirrita samninginn.Meira -
Frumsýning á Rót á Akureyri á laugardaginn
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning 20.04.2026 kl. 15.55 oli@feykir.isRót er ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna eftir leikhópinn Handbendi á Hvammstanga þar sem leikbrúðulistakonan Greta Clougt heldur um taumana. Umfjöllunarefni sýningarinnar, sem verður frumsýnd á Akureyri 25. apríl, er hvernig það er að alast upp milli menningarheima, en móðir Óla, söguhetjunnar, er af erlendu bergi brotin en faðir hans íslenskur. Líf Óla tekur stakkaskiptum þegar amma hans frá Suður-Ameríku kemur í heimsókn og hann uppgötvar nýjan hluta af sjálfum sér.Meira
