Donni með Tindastól í sumar
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
05.01.2010
kl. 09.01
Ennþá bætist á leikmannalistann hjá Tindastól næsta sumar því nú hefur Halldór Jón Sigurðsson eða Donni skrifað undir eins árs samning við Tindastól.
Donni hefur leikið 78 leiki fyrir m.fl. Tindastóls en 108 leiki alls með m.fl. ýmissa liða.
Fleiri fréttir
-
Bland í poka hjá Óskari Péturs
Skagfirðingurinn og yngsti Álftagerðisbróðirinn, Óskar Pétursson, ætlar að bjóða upp á draumafernu um mánaðamótin október-nóvember. Þá stefnir látúnsbarkinn og skemmtikrafturinn á tónleikahald í Miðgarði, Hofi og Hörpu. Miðar á tónleikana eru löngu komnir í sölu, þegar er uppselt á fyrri tónleikana í Hofi og miðarnir hreinlega rjúka út.Meira -
Heilsudagar í Húnabyggð komnir í gang
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin víðsvegar um álfuna í september ár hvert. Í Húnabyggð er metnaðarfull dagskrá í gangi í tilefni átaksins sem Húnvetningar kjósa að kalla Heilsudaga í Húnabyggð og eru íbúar hvattir til að hreyfa sig, ganga eða hjóla í vinnu, fara í göngu- og hjólatúra en einnig að taka þátt í viðburðum sem boðið verður upp á.Meira -
Sundlaugin á Hofsósi opnar eftir viðhald
Nú hefur sundlaugin á Hofsósi verið opnuð aftur eftir lokun v/viðgerðar og viðhalds. Eflaust margir fastagestir sem fagna þessu enda sundlaugin búin að vera lokuð síðan 8. september.Meira -
Miðasala á leikinn í Laugardalnum hafin og Skagafjöður býður í rútuferð
Það er alltaf stemmari í því að klára tímabil í sportinu á risaviðureign. Eftir töluvert basl í neðri deildum á liðnum árum er þetta þó það knattspyrnupiltarnir í liði Tindastóls fá að upplifa nú á föstudaginn þegar þeir reima á sig fótboltaskóna á föstudaginn og fá að sýna listir sínar á sjálfum þjóðarleikvangi Íslands, Laugardalsvellinum. Tilefnið er úrslitaleikur í neðrideildarbikar Fótbolta.nets.Meira -
KS vill byggja sjálfvirka bílaþvottastöð á Sauðárkróki
Á fundi skipulagsnefndar Skagafjarðar þann 18. september síðastliðinn var tekin fyrir ósk frá Kaupfélagi Skagfirðinga um að fá úthlutað lóð við Borgarflöt 33 á Sauðárkróki. Hugðist KS koma upp á lóðinni sjálfvirkri bílaþvottastöð sem nýtast mundi fyrirtækinu og almenningi. Skipulagsnefnd samþykkti samhljóð að hafna umsókninni á þeim forsendum að umrædd lóð hafi ekki verið stofnuð né auglýst laus til úthlutunar.Meira