Grétar Freyr vann sjöunda Hard Wok mótið
Sjöunda Hard Wok háforgjafarmót sumarsins fór fram í gær þar sem 17 kylfingar tóku þátt. Veðrið var frábært og ágætis skor. Sigurvegari mótsins, annað skiptið í röð því hann vann einnig sjötta Hard Wok mótið, var Grétar Freyr Pétursson með 27 punkta.
Grétar setti einnig sitt persónulega vallarmet þegar hann fór hringinn á 43 höggum. Frábær árangur hjá þessum flotta dreng.