Hvöt - Breiðablik - ALLIR Á VÖLLINN
Okkar menn í Hvöt taka á móti meistaradeildarliði Breiðabliks í 32 liða úrslitum í Visa bikarkeppninni á Blönduósvelli klukkan 19:15 í kvöld.
Í fyrra komst Hvöt einnig í 32 liða úrslit en datt úr eftir tap á móti Fram á Laugardalsvelli 2-1. Í ár er strákarnir okkar staðráðnir í því að gera betur og ætla sér alla leið í 16 manna úrslit, í það minnsta.
Aðgangseyrir er 1000 kr fyrir eldri en 16 ára, frítt inn fyrir 16 ára og yngri
Nú er það bara kæru norðlendingar að fjölmenna á völlnn vígbúin regnfötum og regnhlífum með trommur og herlúðra.
Sameinuð stöndum við sterkar... Áfram Hvöt.
