Féllu úr keppni þegar spindilkúla gaf sig

Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson höfnuðu utan vegar og féllu úr leik er þeir urðu fyrir því óhappi að spindilkúla gaf sig. Ljósm./Guðný Guðmarsdóttir.
Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson höfnuðu utan vegar og féllu úr leik er þeir urðu fyrir því óhappi að spindilkúla gaf sig. Ljósm./Guðný Guðmarsdóttir.

Haustrallý BÍKR fór fram núna um helgina í afleitu verðri, roki og úrhellisrigningu. Keppendur létu það þó ekki á sig fá en 14 áhafnir hófu keppni á laugardags morguninn. Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson urðu fyrir því óhappi að spindilkúla gaf sig og þeir höfnuðu utan vegar og féllu úr leik. Þrátt fyrir þetta óhapp leiða þeir enn Íslandsmótið.

Fyrsta sérleiðin lá um  Skjaldbreiðarveg en sú leið hefur ekki verið ekin í rallý undanfarin ár og því öllum keppendum ókunn.  Var ljóst fyrir keppni að leiðin yrði mjög krefjandi fyrir áhafnir og ökutæki  en veðrið hjálpaði ekki til. Kom það á daginn því einungis 10 áhafnir luku þessari fyrstu sérleið.

Því næst var haldið yfir á Uxahryggi en sú leið er rallýökumönnum vel kunnug. Voru Uxahryggir eknir fram og til baka en síðasta sérleiðin var ekin til baka á Skjaldbreiðarvegi. Reyndist sú sérleið keppendum og bifreiðum þeirra álika erfið og um morguninn en einungis sjö áhafnir náðu að ljúka þeirri leið og þar með keppninni. Mikið var um bilanir og áföll eins og útafakstur en Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson urðu fyrir því óhappi á síðustu sérleið að spindilkúla gaf sig með þeim afleiðingum að þeir höfnuðu utan vegar og féllu úr leik. Þrátt fyrir þetta óhapp leiða þeir enn Íslandsmótið og eru í góðri stöðu til að tryggja sér titilinn í síðustu keppni ársins en til þess dugir þeim sjötta sætið.

Lokaúrslit í keppni helgarinnar urðu þannig að Guðni Freyr og Pálmi Jón á Subaru urðu í fyrsta sæti en hjónin Ólafur Þór og Tinna Rós, einnig á Subaru, náðu öðru sæti. Þorkell Símonarson og Þórarinn K. Þórarinsson, sem aka á Toyota Hilux, urðu í því þriðja en þeir sigruðu jafnframt í jeppaflokki. Skilja örfá stig að áhafnir í efstu tveimur sætum jeppaflokks og spennan mikil.

Hverjir hampa Íslandsmeistaratitlum er enn óljóst en lokaumferðin verður haldin þann 17. oktobér næst komandi, væntanlega á Suður- og Vesturlandi.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir