Fjölmargir mættu í opnunarteiti Hótel Blönduóss

Frá opnunarteitinu. Myndirnar hér að neðan tók Stebbi Lísu.
Frá opnunarteitinu. Myndirnar hér að neðan tók Stebbi Lísu.

Það var slegið upp opnunarteiti á Hótel Blönduósi á laugardag og í dag var hótelið opnað gestum. Fjölmargir heimsóttu hótelið á laugardag enda mikið um dýrðir og eflaust margir forvitnir um hvernig tekist hefur til með þær breytingar sem gerðar hafa verið á hótelinu síðan félagarnir Reynir Grétarsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson keyptu það af Byggðastofnun í fyrra og hófu í kjölfarið framkvæmdir.

Í frétt á Húnahorninu segir að gestir hafi allir verið sammála að vel hefði til tekist og mikill sómi af breytingunum. „Auk þess að bjóða gestum og gangandi að skoða sig um var boðið upp á tónlistaratriði, ljósmyndasýningu og þá gátu gestir nært sig á dásamlegum Vilko vöfflum, með sultu og rjóma.“

„Hótel Blönduós fagnar nú 80 ára afmælinu sínu, það er ári eldra en íslenska lýðveldið. Á þeim tíma var Ísland hernumið af Bretum og síðar Ameríkönum, með herbúðum 200 hermanna hinum megin við ána þar sem Snorri Arnfinnsson hengdi upp HÓTEL skiltið sitt. Margt hefur breyst. Ýmsir eigendur hafa komið og farið, hver og einn með sína hugsjón og nálgun. Árið 2022 keyptu nýir eigendur Hótel Blönduós. Þá var ákveðið að gera hótelið algjörlega upp, að innan sem utan. Í stað þess að auka við fjölda herbergja, var ákveðið að betrumbæta gæði þeirra 19 herbergja sem eru til staðar. Meðal stærstu verkefna var að breyta gamla sýslumannshúsinu aftur í stíl þess tíma.” segir í upplýsingabæklingi sem lá frammi í opnunarteitinu.

Feykir óskar eigendum til hamingju með glæsilegt hótel og óskar þeim velfarnaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir