Menningarsjóður KS færir HSN höfðinglegar gjafir

Kristrún Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, og Bjarni Maronsson, formaður Menningarsjóðs KS, kampakát með daginn enda tilefni til. Mynd: PF.
Kristrún Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, og Bjarni Maronsson, formaður Menningarsjóðs KS, kampakát með daginn enda tilefni til. Mynd: PF.

„Það er mjög mikilvægt fyrir stofnun eins og okkar að eiga svona góðan bakhjarl,“ segir Kristrún Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur á heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, en í síðustu viku afhenti stjórn Menningarsjóðs Kaupfélags Skagfirðinga stofnuninni höfðinglega gjöf sem sannarlega kemur öllum vel.

Um er að ræða fimm stór snjallsjónvörp og fóru tvö þeirra á sjúkradeild, eitt á deild III, annað á deild V og það fimmta á deild VI. Fjórir Bluetooth hátalarar, sitthvor á deild III og deild VI og tveir á deild V. Tíu lítil útvarpstæki með heyrnatólum fóru á sjúkradeild. Hljóðkerfi fyrir deild II, lítið hljóðkerfi, eða magnari, fyrir tómstundastarf sem nýtist vel þegar lesið er upp úr bókum eða öðru. Tveir DVD spilarar sem fóru á deild III og V. Með gjöfinni fylgdi uppsetning á tækjunum og segir Kristrún allt vera komið í notkun og komi til með að nýtast afar vel.

Bjarni Maronsson, formaður Menningarsjóðs KS og stjórnarformaður Kaupfélagsins, bauð gesti velkomna, sem voru í færra lagi vegna Covid ástands, og rakti sögu sjóðsins sem á sér langa og merka sögu. Í máli Bjarna kom fram að síðustu ár hefur sá háttur verið hafður á að tvisvar á ári er veitt úr sjóðnum til menningar og framfaramála. Taldi hann þá gjöf sem þarna var verið að afhenda formlega rúmast vel innan þess ramma þar sem menning og framfaramál eru iðulega flutt í fjölmiðlum landsins.

„Þá gerist það í vor þegar við erum að ræða úthlutanir og fara yfir umsóknir að það kemur upp sú hugmynd hvort við getum ekki lagt þessari stofnun lið með þeim hætti að auka aðgengi fólks, sem hér dvelur, að nýjustu tækni til þess að miðla afþreyingu og menningarefni til þeirra,“ sagði Bjarni í ávarpi sínu. Var ákveðið að höfðu samráði við Kristrúnu að gera þetta og sendi hún lista yfir þau tæki sem gætu komið til greina. Sagði Kristrún í sínu þakkarávarpi að ekki hefði hún búist við því að öll tækin sem nefnd voru yrðu á endanum á gjafalistanum.

„Við höfum oft velt því fyrir okkur, við sem hér störfum, hvernig við værum tækjum búin ef ekki nyti við þeim félagasamtökum og einstaklingum í Skagafirði sem hafa lagt okkur lið í gegnum tíðina. Það verður að segjast eins og er að það er grunnurinn að þeim tækjabúnaði sem hér er fenginn fyrir gjafafé og Kaupfélagið hefur verið þar öflugt og vil ég þakka þeim fyrir þær gjafir og þann hlýhug sem að baki þeim býr,“ sagði Örn Ragnarsson, framkvæmdastjóri lækninga.
Að loknum ávörpum og þakkarorðum var boðið upp á kaffi og ljúffengar tertur á öllum deildum sjúkrahússins sem gerðar voru góð skil.

Menningarsjóður KS
Á heimasíðu Kaupfélags Skagafirðinga kemur fram að á vegum félagsins hafi menningarsjóður starfað í um 40 ár, [Ath. Feyki var bent á, eftir að fréttin var birt, að sjóðurinn hafi verið stofnaður árið 1963 og því 57 ára um þessar mundir.] sem hefur styrkt margskonar menningarstarfsemi í Skagafirði gegn um árin. „Má þar nefna styrki til kóra og annarrar tónlistarstarfsemi, leikfélaga, íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og styrki til listamanna. Á fjörutíu ára afmæli sjóðsins ákvað stjórnin að taka upp sérstakar viðurkenningar með fjárframlagi til  þeirra verkefna, sem teljast sérstaklega markverð og þýðingarmikil fyrir menningar- og félagslíf í Skagafirði og nefnist styrkurinn Skagfirskt Framtak.“ Í stjórn sjóðsins sitja Bjarni Maronsson, formaður, Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri, Einar Gíslason, Efemía Björnsdóttir og Inga Valdís Tómasdóttir.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá afhendingunni og af heimilisfólki gæða sér á tertum en þær myndir, og vídeó, voru teknar af starfsfólki HSN.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir