Hátíðarhöld á Blönduósi laugardaginn 7. nóvember

Hátíðardagskráin. Mynd: Aðsend.
Hátíðardagskráin. Mynd: Aðsend.

Um þessar mundir er þess minnst að 150 ár eru síðan verslun hófst á Blönduósi og í kjölfarið fór að myndast þéttbýliskjarninn sem við þekkjum í dag. Af þessu tilefni verður blásið til veislu á Blönduósi í félagsheimilinu þar sem afmælisins verður minnst með ræðum og söng. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir mun heiðra samkomuna og einnig mun hún formlega afhjúpa minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur en Kvenréttindafélag Íslands gefur minnisvarðann.

Dagskráin hefst í félagsheimilinu kl: 13.
Á eftir verður svo dýrleg kaffi- og kökuveisla í boði kvenfélaganna á svæðinu.

Feykir heyrði í Svavari Pálssyni sveitarstjóra í Húnabyggð og lagði fyrir hann eftirfarandi spurningu:

Ef þú gætir ferðast 150 ár aftur í tímann og hitt fyrstu íbúana á Blönduósi, hvað heldurðu að kæmi þeim mest á óvart við bæinn eins og hann er í dag?
„Hversu fjölbreytt og þróað samfélag hefur byggst hér upp á 150 árum. Tækniframfarir, samgöngur og lífskjör væru þeim eflaust framandi. En ég vona að þeir myndu líka bera kennsl á eitthvað af því sem einkenndi samfélagið í upphafi – framtakssemi, samheldni og trú á framtíð byggðarinnar. Að ógleymdu bæjarstæðinu við sjálfa Blöndu, fallega sólarlagið okkar í Flóanum og Strandafjöllin við sjóndeildarhringinn.“
Nánar er rætt við Svavar í næsta tölublaði Feykis.

Íbúum Húnabyggðar og öðrum velunnurum er óskað góðrar afmælisveislu. /hmj

Fleiri fréttir