Húni 2017 komin út

Út er komið 39. árgangur Húna, ársrits Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga. Á heimasíðu USVH segir að að vanda séu í ritinu frásagnir, greinar, ljóð og fréttir úr héraði auk þess sem látinna er minnst.

Meðal efnis í ritinu er greinin „Þið standið alltaf í skilnum” viðtal Inga Bjarnasonar við Sigríði Magnúsdóttur og Elías Guðmundsson. Einnig er þar að finna frásögn um „Ævintýri Húnvetnings í Japan” eftir Kolbrúnu Örnu Björnsdóttur. Útgáfa ritsins er styrkt af Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra.

Húni er til sölu hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga og eins er hægt að fá Húna í áskrift með því að senda tölvupóst á usvh@usvh.is eða hringja í Eygló framkvæmdastjóra USVH í síma 844-0939.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir