Hver á skilið að hljóta Samfélagsverðlaun Skagafjarðar?

Það var Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð sem hlaut viðurkenninguna í fyrra. Hér er hún þriðja frá hægri ásamt hluta fjölskyldu sinnar. MYND AF VEF SKAGAFJARÐAR
Það var Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð sem hlaut viðurkenninguna í fyrra. Hér er hún þriðja frá hægri ásamt hluta fjölskyldu sinnar. MYND AF VEF SKAGAFJARÐAR

Árið 2016 var bryddað upp á þeirri nýbreytni að veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Skagafirði, sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag, Samfélagsverðlaun Skagafjarðar. Nú er óskað eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2023.

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar hafa verið veitt árlega frá því 2016 og verða nú veitt í áttunda sinn á setningu Sæluviku sem fram fer í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 30. apríl nk. Frestur til þess að senda inn tilnefningar er til og með 18. apríl nk og þurfa íbúar því að bregðast skjótt við og leggja heila í bleyti.

Tilnefningar eru sendar inn með því að fylla út rafrænt skjal en einnig er í boði að senda tilnefningar á netfangið heba@skagafjordur.is eða skila inn skriflega í afgreiðslu Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 17-21.

Eftirtaldir aðilar hafa verið sæmdir Samfélagsverðlaunum Skagafjarðar fyrir sinn þátt í að efla skagfirskt samfélag:

2016 – Stefán Pedersen
2017 – Kristmundur Bjarnason
2018 – Hjónin Árni Stefánsson og Herdís Klausen
2019 – Geirmundur Valtýsson
2020 – Helga Sigurbjörnsdóttir
2021 – Stefán R. Gíslason
2022 – Helga Bjarnadóttir

- - - - -
Heimild: Skagafjörður.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir