Kennsla hófst í dag í nýrri list- og verkgreinaálmu Blönduskóla

Ein myndanna á Facebook-síðu Blönduskóla sem sýnir aðstöðuna. MYND: FB-SÍÐA BLÖNDUSKÓLA
Ein myndanna á Facebook-síðu Blönduskóla sem sýnir aðstöðuna. MYND: FB-SÍÐA BLÖNDUSKÓLA

„Við erum alveg að springa úr spenningi. Framkvæmdum er alveg að ljúka. Þetta er alveg að hafast,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Blönduskóla á Blönduósi á laugardaginn en vonir stóðu til þess að kennsla hæfist í nýju list- og verkgreinaálmunni í dag og það gekk að sjálfsögðu eftir.

„„Litlu” verkin, „restarnar” taka þó alltaf ótrúlega langan tíma og við verðum örugglega alveg fram á vor að koma okkur almennilega fyrir, ákveða hvar best er að hafa hlutina og merkja skúffur og skápa. En það gengur hraðar þegar margir hjálpast að og hafa bæði nemendur og starfsfólk verið dugleg við að aðstoða við flutninga og já t.d. að plokka IKEA-miða af áhöldum sem getur tekið ansi langan tíma get ég sagt ykkur.“ segir í tilkynningunni.

Á síðunni má sjá nokkrar myndir af aðstöðunni. „Vonandi getum við haft opinn dag í vor og boðið ykkur öllum að koma og skoða,“ segir í lok tilkynningarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir