Kvennakórinn Sóldís með tónleika

Sóldísir eru í sumarskapi og hafa boðað komu sína í Menningarhúsið Miðgarð annað kvöld, 10. ágúst, með tónleika. Í tilkynningu biðja þær alla sem munda amboðin að leggja þau frá sér og hlýða á skemmtilega dagskrá. Og fyrir þá sem áhuga hafa verður barinn opinn.

Söngstjóri er Helga Rós Indriðadóttir og Rögnvaldur Valbergsson sér um undirleik. Dagskráin hefst kl. 20:30 og kostar kr. 1500 inn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir