Miðar á Laufskálaréttarballið komnir í sölu

Stórveisla framundan. MYND AÐSEND
Stórveisla framundan. MYND AÐSEND

Það styttist í Laufskálaréttarhelgina, en það eru þeir Siggi Doddi, Adam Smári og Viggó Jónsson sem eru mennirnir á bak við stóra Laufskálaréttarballið sem haldið verður í Reiðhöllinni Svaðastöðum laugardaginn 30. september næstkomandi.

Forsala aðgöngumiða hófst í gær og er hægt að nálgast miða á N1 Ábæ Sauðárkróki og Vamos á Akureyri. Sverrir Bergmann og Albatross, Diljá, Séra Bjössi, Emmsjé Gauti og síðastir en ekki sístir Hljómsveitin Von, er tónlistarfólkið sem ætlar að stjórna þessari veislu. Í fyrra var ekki uppselt eins og margur maðurinn hélt en ljóst er að stærsta sveitaball ársins er framundan svo nú er lag að tryggja sér miða á þessa stórveislu. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir