Ronaldo besti leikmaður allra tíma

Luke Rae hefur verið duglegur fyrir framan mark mótherja Tindastóls í sumar. Hann er markahæstur í 3. deildinn með 16 mörk í 20 leikjum. MYNDIR: ÓAB
Luke Rae hefur verið duglegur fyrir framan mark mótherja Tindastóls í sumar. Hann er markahæstur í 3. deildinn með 16 mörk í 20 leikjum. MYNDIR: ÓAB

Á fótboltavellinum er erfiðast að skora mörk. Það er dýrmætt fyrir lið að hafa leikmann í sínum röðum sem er snjall að koma boltanum í mark andstæðinganna. Tindastóll nældi í einn svona leikmann í byrjun sumars. Luke Morgan Conrad Rae, 19 ára strákur frá Overton, litlum bæ á Englandi, hefur verið iðinn við kolann. Foreldrar hans eru Sheldon og Michelle og hann á sjö systkini; bræðurna Nathan og McKenzie og systurnar Nicola, Leoni, Chanel, Alicia og Bailey.

Luke er lipur, teknískur og áræðinn á fótboltavellinum en hann getur ýmist spilað stöðu framherja eða kantmanns. Hann er markahæstur í 3. deildinni, búinn að skora 12 mörk í deild og tvö í Mjólkurbikarnum. Hann er alltaf líklegur til að dúkka upp með mikilvægt mark.

Luke segir að það hafi verið frábært tækifæri fyrir sig að koma til Íslands. Í fyrsta lagi til að bæta möguleika sína á að verða atvinnumaður í knattspyrnu og í öðru lagi að öðlast reynslu í lífinu með því að búa í öðru landi og upplifaöðruvísi menningu. „Áður en ég kom hingað var ég að spila fótbolta í Suðurdeildinni í Englandi sem er einskonar 7. deild,“ segir Luke.

Hvernig var tími þinn í sóttkví hér á Íslandi? Vikurnar tvær í sóttkví voru ekki svo slæmar. Ég var með tveimur strákum sem komu hingað á sama tíma þannig að okkur leiddist sannarlega ekki. Sérstaklega vegna þess ég naut þess að vinna alla FIFA leikina gegn þeim. 

Luke segist hafa vitað af því með töluverðum fyrirvara að sá möguleiki væri fyrir hendi að spila fótbolta með liði Tindastóls á Íslandi. „En þetta var skrítinn tími meðan beðið var eftir staðfestingu. Það var í raun ekkert 100% ákveðið fyrr en nokkrum dögum áður en ég var kominn í flug til Íslands.“

Hvað hefur komið mest á óvart síðan þú komst til Íslands? „Ég er mest hissa á því hvað allt er dýrt, hlutir eru að kosta tvöfalt meira hér en úti í Bretlandi.“

Hvað finnst þér um íslensku 3. deildina? „Deildin er alveg ágæt, ég hef stundum haft gaman að því að spila mikið á skömmum tíma og sumir leikirnir hafa verið harðir og jafnir. Það eru nokkrir leikmenn sem við höfum spilað gegn sem hafa sýnt getu til að spila Pefstu deild.“

Hvernig er að vera í Tindastólsliðinu? Það er fínt að vera hluti af liðinu. Þetta eru góður strákur sem ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst. Um leið og ég kom hingað tóku strákarnir vel á móti mér og mér líður eins og heimahjá mér – þannig að það segir mikið um liðið.“

Hver er uppáhalds liðsfélagi þinn? „Ég myndi ekki segja að ég eigi uppáhalds liðsfélaga, leikmennirnir sem ég umgengst helst eru Tanner og Micheal áður en hann fór aftur til Bretlands. Einnig Hamish sem er nýlega kominn hingað. En ég get ekki sagt að ég eigi einhvern uppáhalds liðsfélaga.“

Hvaða væntingar gerðirðu til tímans á Íslandi?  „Væntingarnar með veru minni hér voru að sanna mig þannig að ég fengi tækifæri til að verða atvinnumaður. Það voru nokkur lið sem sýndu mér áhuga snemma á tímabilinu – og líka nú nýlega – en ég hef svarað því að ég muni vera hér til loka tímabilsins. Þegar ég kom hingað sagðist ég ætla að gera allt sem ég gæti til að hjálpa strákunum og Tindastólsliðinu að komast upp um deild. Markmið mitt áður en ég kom hingað var að hjálpa liðinu að komast upp og skora 20+ mörk í öllum keppnum. Mér finnst ég skulda strákunum að halda tryggð við Tindastólsliðið vegna alls sem þeir hafa gert síðan ég kom hingað.“

Hvaða leikmaður hefur verið þín fyrirmynd? „Ég hef alltaf fengið innblástur frá Cristiano Ronaldo, sérstaklega þegar hann var hjá Manchester United. Vinnusemi og sú mikla ástundun sem hann leggur í fótboltann er ótrúleg og það er ekki bara hann sem knattspyrnumaður heldur hann sem íþróttamaður og manneskja. Hann er besti leikmaður allra tíma! Það þarf ekkert að ræða það frekar.“

Hvað gerir þú hér á Sauðárkróki fyrir utan að spila fótbolta? „Ég vakna vanaleg um kl. 7 til að vera klár í vinnu kl. 8. Ég er síðan að vinna til klukkan 16:30 og næ síðan að hvíla mig í 30 mínútur áður en ég fer á æfingu. Suma daga gátum við æft í einn og hálfan tíma og suma daga getum við aðeins æft í klukkutíma. Fyrir eða eftir æfiingar þjálfa ég svo stundum sjálfur í smá tíma. Eftir æfingu fer ég svo heim og spila Call of Duty með strákunum og sofna svo.“

Hvað hefur verið erfiðast við að vera hér eða er eitthvað fyndið sem hefur komið fyrir þig? „Ég myndi ekki segja að það hafi komið eitthvað tímabil þar sem mér hefur fundist erfitt að vera hér. Ég man ekki heldur eftir neinu sérstöku atviki sem er fyndið en vanalega koma upp fyndin atvik þar sem ég er ekki alveg með á nótunum – eins og að halda að það væri það hlýtt á Íslandi að ég þyrfti ekki að hafa með mér úlpu!“

Í lokin má nefna það að uppáhalds snakk/drykkur Luke er gamla góða Egils appelsínið, Stjörnurnar eða Flýg er lag sumarsins, hestur er það skrítnasta sem hann hefur borðað á Íslandi en uppáhaldsliðið í fótboltanum er Borussia Dortmund.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir