Styrktartónleikar í Sauðárkrókskirkju

Í kvöld, laugardaginn 3.desember klukkan 20:30, verða styrktartónleikar í Sauðárkrókskirkju þar sem skagfirskt tónlistarfólk kemur gestum í jólaskap. Lofað er skemmtilegri og notalegri kvöldstund á jólanótunum.

Fram koma Emelíana Lillý, Elva Björk, Emma Dallilja, Eydís Eysteins, Eysteinn Ívar, Flóra Rún, Fúsi Ben, Hrafnhildur Ýr, Ingi Sigþór, Jóhanna Marín, Margrét Petra, Sigurlaug Vordís, Sigvaldi Helgi, Sveinn Rúnar og Vignir Kjartans. Þetta bara getur ekki klikkað.

Kirkjan verður opnuð gestum kl.20.00. Miðaverð á tónleikana er kr. 2.500. Enginn posi verður á staðnum! Þeir sem komast alls ekki á tónleika en vilja leggja söfnuninni lið þá er hægt að millifæra á söfnunarreikninginn. 0310 - 13 - 300565. Kennitalan er 560269-7659.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir