Umboðsmaður barna heimsótti Húnaþing vestra

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, í skólanum. MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, í skólanum. MYND AF VEF HÚNAÞINGS VESTRA

Mánudaginn 17. apríl heimsótti Salvör Nordal, umboðsmaður barna, ásamt starfsfólki embættisins, Húnaþing vestra. Í frétt á vef sveitarfélagsins segir að byrjað var á því sýna gestunum grunnskólann þar sem þau fengu m.a. kynningu á skólastarfinu frá nemendaráði skólans.

„Snæddur var hádegisverður með nemendum og að honum loknum fengu nemendur kynningu á starfi umboðsmanns barna. Því næst var haldið yfir í leikskólann þar sem leikskólastjóri tók á móti þeim og kynnti fyrir þeim starf leikskólans. Félagsmiðstöðin og Húnaklúbburinn var með kynningu á sínu starfi í húsnæði félagsmiðstöðvar og svo var gengið í góðu veðri í íþróttahúsið. Þar voru hestafimleikarnir með æfingu og sagt frá starfsemi íþróttafélaganna.

Umboðsmaður, ásamt starfsfólki, fengu svo kynningu á innleiðingu farsældar barna í Húnaþingi vestra áður en þau funduðu með ungmennaráði. Þétt skipaður dagur enda margt að sjá og kynnast,“ segir í fréttinni á Húnaþing.is.

Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá á heimasíðunni >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir