Gúllassúpa og mjólkurgrautur

Harpa Sóllilja, Abba, Beggi og Haraldur Óli. MYND AÐSEND
Harpa Sóllilja, Abba, Beggi og Haraldur Óli. MYND AÐSEND

Það var Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir (Abba) sem var matgæðingur vikunnar í tbl 37, 2022, en hún er menntaður Bowentæknir og er ásamt eiginmanni sínum, Guðbergi Ellerti (Begga) með B.A. í þroskaþjálfafræðum. Í dag starfar hún sem bílstjóri, kynningaraðili og sölumaður hjá Smáframleiðendum á ferðinni sem Vörusmiðja – BioPol á Skagaströnd heldur utan um og Beggi starfar á sambýlinu í Fellstúni sem forstöðuþroskaþjálfi. Abba og Beggi eiga saman tvö börn, Harald Óla (Halla) 18 ára, starfar hjá Sveitasetrinu Hofstöðum, og Hörpu Sóllilju (Skrípið, hennar orð) 11 ára grunnskólanema.

„Matargerð er vissulega ekki mín sterkasta hlið og ég get ekki sagt að ég njóti þess að brasa í eldhúsinu. Ég er meira í forvinnunni áður en hægt er að kalla hráefnið máltíð. Því sækist ég mjög eftir því að elda í stórum skömmtum og eiga í frosti eða geta sett allt í einn pott og þurfa lítið að hugsa um matinn fyrr en hann er tilbúinn. Gúllassúpa er tilvalin í frostið og mjólkurgrautur er það allra besta þegar mann langar að gera eitthvað annað en að elda. Mér finnst þó mikilvægt að nýta eðal hráefni og það er mikill kostur ef það kemur úr héraði,“ segir Abba.

UPPSKRIFT 1
Gúllassúpa

    600 g gúllas (Ég mæli með góðu ærkjöti, súpan þarf þá dálítið lengri tíma).
    1 rauð paprika, skorin í bita
    1 gulur laukur
    u.þ.b. 6 meðalstórar kartöflur
    1 sæt kartafla
    u.þ.b. 3 meðalstórar gulrætur
    1 msk. paprika (krydd) Okkur finnst betra að hafa ½ msk. reykta papriku sterka og ½ msk. reykt paprika mild. Það má svo leika sér með það eftir því hvort fólk vill milda eða sterka súpu.
    1 ½ tsk. cummin (ath. ekki kúmen)
    salt og pipar
    chili krydd eftir smekk (ég notaði chili explosion)
    2 msk. ólívuolía
    1 lítri kjötkraftur (nautakraftur og vatn)
    3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt (eða meira því hvítlaukur er allra meina bót)
    2 msk. smjör
    1-2 msk. tómatpúrra
    sýrður rjómi

Aðferð: Kjötið er skorið í minni teninga ef með þarf. Kartöflur, laukur og gulrætur flysjaðar og skornar í meðalstóra teninga. Kjöt, laukur og paprika er steikt upp úr olíu í stórum potti og öllum kryddunum bætt út í. Þegar kjötið hefur fengið lit er nautakraftinum og tómatpúrrunni bætt út í pottinn og suðan látin koma upp. Þá er smjörinu og hvítlauknum bætt út í. Látið malla í u.þ.b. 50 – 60 mín. – súpan verður enn betri ef hún fær að malla lengur! Þegar um það bil 20 mín. er eftir af suðutímanum eru kartöflunum og gulrótunum bætt út í súpuna. Borin fram með sýrðum rjóma og góðu brauði ef vilji er fyrir því. Best er að gera allt of margfalda uppskrift svo hægt sé að eiga súpu í frosti langt fram eftir vetri.

UPPSKRIFT 2
Mjólkurgrautur í ofni

    2,5 dl hrísgrjón
    2,5 dl vatn
    1 lítri nýmjólk
    nokkrar smjörklípur
    1 tsk. salt

Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Blandið öllum hráefnum saman í stórt eldfast mót (amk 2 lítra) eða pott sem má fara í ofn. Setjið álpappír yfir og bakið í miðjum ofni í 1,5 klst. Á meðan er eitthvað skemmtilegt gert með fjölskyldunni. Þegar grauturinn er tilbúinn er hrært vel í honum. Ef vilji er fyrir þynnri graut má bæta mjólk út í hann. Borið fram með vel súru slátri og nokkrum köldum rúsínum (nema fyrir Begga).

Verði ykkur að góðu!

Abba skoraði á Árna Gísla Brynleifsson og Heiðu B. Jóhannsdóttur að taka við matgæðingarþætti Feykis. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir