Vorrúllur og Mango Sticky Rice | Matgæðingar Feykis
Matgæðingar vikunnar í tbl 10 voru þau Malen Áskelsdóttir og Bjarki Bernardsson. Malen er dóttir Völu Báru og Áskels Heiðars í Brekkutúninu á Króknum. Bjarki er alinn upp á Akureyri og er hálfur Hollendingur. Malen og Bjarki kynntust sem unglingar í Borgarfirði eystri en þau eiga bæði tengingu við það svæði og hafa búið þar mörg sumur.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Stefnt að tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki
Um langt árabil hafa Króksarar leitað að hentugum stað fyrir tjaldsvæði bæjarins en lengi hefur legið fyrir að tjaldsvæðið á Flæðunum, milli sundlaugar og Safnahússins, yrði að víkja. Unnið var skipulag að tjaldsvæði í Sauðárgili en eftir mótmæli íbúa í nálægð við svæðið var ákveðið að hætta við það. Nú síðustu misserin hefur valið staðið á milli tjaldsvæðis á Nöfum og við Borgargerði og á síðasta fundi sveitarstjórnar var samþykkt að auglýsa skipulagslýsingu fyrir Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki.Meira -
Emma Katrín og Lena Rut Íslandsmeistarar í tvíliðaleik
Meistaramót Íslands í badminton fór fram um helgina í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Badmintondeild Tindastóls sendi tvo keppendur til leiks; systurnar Júlíu Marín og Emmu Katrínu Helgadætur. Bestum árangri náði Emma í tvíliðaleik kvenna en hún og Lena Rut úr BH vörðu Íslandsmeistaratitilinn.Meira -
Rakel Birta náði bestum árangri PKS-félaga á Íslandsmótinu í pílu
Síðastliðinn laugardag fór fram Íslandsmeistaramót ungmenna í pílukasti á Bullseye í Reykjavík en 72 keppendur mættu til leiks. Tólf krakkar frá Pílukastfélagi Skagafjarðar (PKS) tóku þátt og stóðu þau sig öll frábærlega og komu heim með fern verðlaun, eina silfurmedalíu og þrjár bronsmedalíur.Meira -
Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? | Þuríður Harpa og Harpa Cilia skrifa
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 28.04.2026 kl. 08.54 oli@feykir.isFrá því 2001 hafa sveitarfélögin átt kost á veglegum styrkjum frá ríkinu til úrbóta í aðgengismálum. Þrátt fyrir háværa umræðu um vanfjármögnun í málaflokki fatlaðs fólks fóru tæpar 120 milljónir króna forgörðum á árunum 2021-2024. Eftirspurnin eftir styrkjunum var of lítil.Meira -
Yfir milljón á dag – við getum gert betur | Jódís Helga og Elfa Björk skrifa
Fjárhagur sveitarfélags er ekki bara samansafn talna í ársreikningi. Hann er eign íbúanna og þannig grunnurinn að allri þjónustu sveitarfélagsins, allt frá leikskólum og grunnskólum til innviðauppbyggingar og velferðarþjónustu. Sveitarfélagið innheimtir útsvar, fasteignaskatt og ýmis önnur gjöld, og ráðstafar þeim fjármunum svo til verkefna í sveitarfélaginu. Við þurfum að tryggja að umræða um fjármál sveitarfélagsins sé gagnsæ og byggð á staðreyndum. Íbúarnir eiga rétt á því að vita hvernig fjármunir eru nýttir og hvernig þeim er forgangsraðað. Undanfarið hefur umræðan um fjármál sveitarfélagsins verið nokkuð hávær. Í slíkri umræðu skiptir máli að rétt sé farið með staðreyndir. Ársreikningur ársins 2025 var samþykktur á fundi sveitastjórnar 22. apríl síðastliðinn og því hægt að byggja á þeim gögnum.Meira
