121 án atvinnu - Á annað hundarð erlendir verkamenn í tímabundinni atvinnu á svæðinu
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
01.10.2010
kl. 08.34
Í dag föstudaginn 1. október eru 121 einstaklingar að einhverju eða öllu leyti skráðir án atvinnu á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Engin störf eru auglýst laus til umsóknar á starfatorgi Vinnumálastofnunar fyrir Norðurland vestra.
Á sama tíma eru hátt á annað hundrað erlendir farandverkamenn við störf hjá Sláturhúsunum þremur á Norðurlandi vestra það er á Sauðárkróki, Hvammstanga og á Blönduósi.
