22 nemendur brautskráðust frá Háskólanum á Hólum

Brautskráningarnemar haustið 2021. MYND: HÓLAR.IS
Brautskráningarnemar haustið 2021. MYND: HÓLAR.IS

Á heimasíðu Háskólans á Hólum segir frá því að föstudaginn 8. október síðastliðinn var brautskráningarathöfn háskólans að hausti í Hóladómkirkju en alls brautskráðust 22 nemendur að þessu sinni.

Frá Ferðamáladeild brautskráðust átta einstaklingar, einn með diplóma í ferðamálum, fimm með diplómu í viðburðastjórnun og tveir með BA gráðu í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta. Frá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild brautskráðust 13 einstaklingar, 12 með diplómu í fiskeldi og einn með MS gráðu í sjávar- og vatnalíffræði. Frá Hestafræðideild brautskráðist einn einstaklingur með diplóma í reiðmennsku og reiðkennslu.

Í fréttinni segir að athöfnin hafi verið gleðistund enda höfðu nemendur lagt stund á nám við mjög óhefðbundnar aðstæður sökum Covid-faraldursins. Að athöfn lokinni bauð háskólinn nýbrautskráðum Hólamönnum, aðstandendum og starfsfólki til veislu í Kaffi Hólar.

Alls brautskáðust 66 einstaklingar, með 67 gráður, frá háskólanum á skólaárinu. 28 einstaklingar af fræðasviðum ferðamála, 17 af fræðasviðum fiskeldis- og fiskalíffræði, sjávar og vatnalíffræði og 22 af á fræðasviði hestafræða.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir