8% lækkun á lambakjöti

Verð mun lækka um 8% á lambakjöti og rúmlega 30% á ærkjöti hjá KS og KVH.
Verð mun lækka um 8% á lambakjöti og rúmlega 30% á ærkjöti hjá KS og KVH.

Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga og Sláturhús KVH hafa nú birt verðskrá fyrir sláturtíð 2016 en hún mun taka gildi þann 12. september. Á heimasíðu Kaupfélags Skagfirðinga segir að mikið hafi borist af sláturfjárloforðum til sláturhúsa KS og KVH og er þegar búið að skipuleggja slátrun vel fram í október. Sama verðskrá gildir frá byrjun og út sláturtíð þar sem ekki greiðist álag á einstakar vikur.

„Að þessu sinni er um lækkun að ræða á verðskrá frá sláturtíð 2015 eða 8% lækkun á lambakjöti og rúmlega 30% lækkun á ærkjöti. Ef betur tekst til við sölu á afurðum heldur en útlit er fyrir á þessum tímapunkti, munum við skoða hvort hægt sé að greiða uppbætur á verðið. Það mun þó að öllum líkindum ekki liggja fyrir fyrr en í mars á næsta ári,“ segir á síðunni.

Ástæður lækkunar eru taldar fyrst og fremst vera óhagstæðar aðstæður í útflutningi, styrking krónunnar, veiking annara gjaldmiðla, lækkun á mörkuðum og hrun á hliðarafurðamörkuðum, s.s gærum. Þá hefur ekki tekist að afla leyfis fyrir afurðastöðvarnar til viðskipta með afurðir til Rússlands og takmarkar það verulega afsetningarmöguleika stöðvanna á ærkjöti.

Fleiri fréttir