Aðalfundur Bílaklúbbs Skagafjarðar

Bílaklúbbur Skagafjarðar heldur aðalfund sinn á Kaffi Krók föstudaginn 20. mars kl. 20:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Leitað er að fólki sem er tilbúið að aðstoða við stækkun klúbbsins og viðraðar verða hugmyndir um fornbíla, kassabíla, spyrnu, burnout og að klúbburinn komi sér upp eigin svæði.

Einnig er stefnt að því að halda fundi mánaðarlega og að klúbbfélagar geri eitthvað skemmtilegt saman. Því eru allir félagsmenn, nýjir og gamlir, hvattir til að mæta og hjálpa til við að marka nýja stefnu klúbbsins. Þeir sem hafa áhuga á að starfa í stjórn eða hjálpa til við keppnishald geta látið vita af sér á netfangið bilaklubbur@fjolnet.is og tekið verður vel á móti þeim.

Þá leitar bílaklúbburinn að gömlum myndum eða myndböndum allt frá upphafi klúbbsins 1989. Þeir sem eiga þær í fórum sínum geta haft samband á sama netfang.

Fleiri fréttir