Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til aðalfundar laugardaginn 9. apríl kl. 12-17 í Landnámssetrinu í Borgarbyggð.

Uppstillingarnefnd ráðsins auglýsir hér með eftir framboðum til stjórnar og í önnur embætti sem kosið verður um á aðalfundinum. Tillögur berist til formanns uppstillinganefndar, Sigurðar Péturssonar siggip@snerpa.is eða í síma 895-8270, eigi síðar en föstudaginn 8. apríl.

Á aðalfundi verða hefðbundin aðalfundarstörf. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður kjördæmisins og Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, ávarpa fundinn og taka þátt í umræðum.

Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og taka þátt í undirbúningi og umræðum vegna komandi aukalandsfundar Samfylkingarinnar þann 3. og 4. júní n.k. á Grand Hótel.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir