Aðstöðuhús við kirkjugarðinn á Sauðárkróki

Nýja aðstöðuhúsið sómir sér vel á nýjum stað.
Nýja aðstöðuhúsið sómir sér vel á nýjum stað.

Nýju aðstöðuhúsi var komið fyrir við kirkjugarð Sauðkrækinga á Nöfum um síðustu helgi. Því er ætlað að hjálpa til við að auka þjónustu við almenning s.s. með almennri upplýsingagjöf vegna garðsins og salernisaðstöðu sem ekki hefur verið til staðar.

Að sögn Péturs Péturssonar formanns sóknarnefndar Sauðárkrókskirkju var ákvörðun um byggingu aðstöðuhússins tekin fyrir nokkrum árum síðan. Smíðin var verkefni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og segir Pétur þetta hafa verið alveg tilvalið verkefni fyrir trésmiðir og rafvirkja og hverja þá sem að verkinu kom. Nú sé bara eftir að ganga frá að innan og tengja lagnir.

Við flutning hússins frá verknámshúsi FNV og í gegnum bæinn skemmdist járn á þaki er það straukst við gangbrautarskilti en Pétur segir það ekki alvarlegt, einungis þurfi að skipta um þakjárn.

Pétur segir að nú þegar sé búið að sækja um stækkun garðsins og teikna aðgengi að nýja húsinu og sé það allt í vinnslu en taki sinn tíma í kerfinu vegna gerð deiliskipulags o.fl.Aðstöðuhús í kirkjugarði

Hvað verði um gamla skúrinn segir Pétur hann nýtast áfram sem geymsla. Þar eru m.a. ljósakrossar sem settir eru á leiði um jól og áramót en Kiwanismenn hafa tekið að sér þá þjónustu.

Fleiri fréttir