Ákveðið að fresta Vetrarhátíð Tindastóls
Vetrarhátíð Tindastóls sem fram átti að fara á morgun hefur verið frestað um tvær vikur vegna veðurs. Að sögn Viggós Jónssonar staðarhaldara skíðasvæðisins í Tindastóli þótti ekki forsvaranlegt að ögra veðurguðunum að þessu sinni.
Boðið verður upp á sömu dagskrá og auglýst var í Sjónhorni vikunnar, en Viggó lofar betra veðri.