Árleg messa að Ábæ
feykir.is
Skagafjörður
30.07.2015
kl. 11.46
Hin árlega messa að Ábæ er sunnudaginn 2. ágúst kl. 14. Sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ flytur prédikun. Ábæjarmessan er alltaf vel sótt, bæði af Skagfirðingum og ferðamönnum. Vegslóði er fram að Ábæ sem er fær jeppum og vel útbúnum bílum. Í þessa árlegu messu koma einnig margir ríðandi.