Árlegt göngustíganámskeið ferðamálanema

Gert við göngustíga. Mynd: Fésbókarsíða Hólaskóla.
Gert við göngustíga. Mynd: Fésbókarsíða Hólaskóla.

Hið árlega göngustíganámskeið ferðamálanema á fyrsta ári ári við Háskólann á Hólum var haldið nýlega. Námskeiðið er liður í stærra námskeiði sem nefnist Gönguferðir og leiðsögn og jafnframt mikilvægur hluti af námi diplómnema til að fá landavarðaréttindi sem Umhverfisstofnun.

Á námskeiðinu var unnið að ýmsum verkefnum er tengjast því að hanna og viðhalda göngustígum. Námskeiðið er haldið í góðu samstarfi Hólaskóla við sjálfboðaliða í Náttúruvernd sem René Biasone, teymisstjóri hjá UST heldur utan um. Fjölmenni var á námskeiðinu og mikill kraftur og gleði hjá öllum þátttakendum, eins og sagt er frá á vef Hólaskóla.

Unnið var að viðgerð göngustígarins upp í Gvendarskál, sem er mjög grýttur og brattur. Nemendur þurftu að ganga upp í fjallshlíðina, bera verkfæri og vinna við krefjandi aðstæður. Jafnframt var gert við þrep á skógarstígum inn á tjaldsvæði og á aðalstíg upp í Gvendarskál, sem voru farin að láta á sjá, enda að verða tíu ára gömul.

Eftir þriggja daga puð og skemmtun er búið að bæta verulega gönguleiðina upp í Gvendarskál og gera hana öruggari og draga úr rofi í stígnum. Jafnframt er búið að bæta hinar ýmsu gönguleiðir um Hólaskóg, sem nemendur og allir þeir sem vinna og heimsækja Hólastað eiga vonandi eftir að njóta lengi.

Kennari og umsjónarmaður námskeiðs er Kjartan Bollason, lektor við ferðamáladeildina. Jafnframt kenndu Rene Biasone teymisstjóri hjá UST og Roger og Aline, langtímasjálfboðaliðar hjá UST.

 

Fleiri fréttir