Bændur á Syðri-Hofdölum fengu Landbúnaðarverðlaunin 2018
Á Búnaðarþingi, sem sett var í morgun í Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík, hlutu bændur á Syðri-Hofdölum í Skagafirði Landbúnaðarverðlaunin 2018. Verðlaunin eru hugsuð sem viðurkenning til aðila sem á einn eða annan hátt tengjast íslenskum landbúnaði og hafa sýnt með verkum sínum áræðni og dugnað. Feykir óskar þeim Trausta Kristjánssyni, Ingibjörgu Aadnegard, Klöru Helgadóttur og Atla Má Traustasyni til hamingju með viðurkenninguna.
Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Hér á ég heima“. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, flutti setningarræðu við upphaf þingsins og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpaði gesti.
Forseti Íslands, alþingismenn, ráðherrar og gestir frá norrænum bændasamtökum voru meðal viðstaddra við setningu þingsins en hátíðardagskrá lauk með staðgóðri hádegishressingu í boði íslenskra bænda.
Pappírslaust Búnaðarþing í fyrsta sinn
Þingstörf hófust eftir hádegi og standa yfir í tvo daga. Í fyrsta sinn er pappírslaust Búnaðarþing en þingfulltrúar nálgast öll gögn þingsins á tölvutæki formi á skýi og vinna með í sínum fartölvum.
Ný umhverfisstefna og fleiri mál
Fjölmörg mál eru á dagskrá Búnaðarþings 2018, m.a. um endurskoðun búvörusamninga, yfirvofandi innflutning á hráu kjöti, tollamál búvara, upprunamerkingar á mat og eftirlit með þeim, menntun í landbúnaði, loftslagsmál og endurheimt votlendis, lífrænan landbúnað og fleira. Stefnt er að því að samþykkja nýja umhverfisstefnu landbúnaðarins sem unnið hefur verið að á vettvangi Bændasamtakanna á síðustu misserum.