Beint frá býli á Kvikmyndahátíðinni í Cannes

Lilja og Baltasar á rauða dreglinum í Cannes.
Lilja og Baltasar á rauða dreglinum í Cannes.

Bíóbændurnir frá Hofi á Höfðaströnd, Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir, gerðu gott mót á Kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gær en þar frumsýndi Baltasar nýjustu afurð sína, Everest, sem hefur að öllu jöfnu hlotið lof gagnrýnenda og er hvarvetna beðið með mikilli eftirvæntingu.

Everest er stærsta verkefni Baltasars sem leikstjóra og hlaut hún þann heiðurssess að vera opnunarmynd Cannes-hátíðarinnar í ár. Myndin skartar fjölmörgum stórstjörnum, m.a. James Brolin, Jake Gyllenhall, Keiru Knightley og Ingvari Sigurðssyni, og er nú sýnd á helstu kvikmyndahátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum.

„Þetta var mikil hátíð, ítalski forsetinn mættur og allur pakkinn þannig að þetta gat ekki verið mikið hátíðlegra,“ segir Baltasar í samtali við RÚV. Þarna voru þúsundir ljósmyndara og fjöldi fólks. Viðtökurnar að sýningu lokinni sagði Baltasar hafa verið góðar. Gestir hafi risið úr sætum og klappað. „Sem er víst ekki gefið á þessum hátíðum. Þeir geta verið mjög harkalegir stundum ef þeir fíla ekki það sem þeir sjá. Þannig að hátíðarhaldarinn og þeir í kring voru rosa jákvæðir og ánægðir með viðbrögðin,“ hefur RÚV eftir Baltasar Kormáki.

Myndin er byggð á sönnum atburðum en hún fjallar um hrakfallaferð á fjallið mikla og þykir einkar raunsæ og vel gerð. Margir reikna með að Everest verði ein af stærstu myndum ársins (sem ekki er byggð á teiknimyndafígúrum) og geri jafnvel tilkall til einhverra Óskarsverðlauna þegar þar að kemur – jafnvel í flokki bestu mynda.

Everest verður tekin til sýninga í kvikmyndahúsum föstudaginn 18. september og að sjálfsögðu verður myndin frumsýnd á Króknum sama dag. Króksbíó klikkar ekki frekar en fyrri daginn!

Fleiri fréttir