Björgunarsveitir frá Norðurlandi vestra á hálendisvaktinni
Greint er frá hálendisvakt Landsbjargar á huni.is. Björgunarsveitin Húnar í Húnaþingi vestra tekur þátt í vaktinni en félagar úr sveitinni eru nú komnir í Nýjadal en þar verður dvalið í viku.
Þá tekur Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd einnig þátt í verkefninu ásamt félögum frá Björgunasveitinni Gretti á Hofsósi. Björgunarsveitirnar munu mæta í Nýjadal í vikunni. Björgunarsveitunum er ætlað að aðstoða og leiðbeina feðamönnum á hálendi Íslands.
Ekki er þetta eina hálendisvaktin en hún er einnig í Drekagili við Öskju, í Nýjadal á Sprengisandsleiðinni og í Landmannalaugum. Vaktin stendur yfir frá byrjun júlí og er til ágústloka, enda ferðamannastraumurinn hvað mestur um þetta leiti.