Björgvin Schram í hluthafahóp Fjölnets

Björgvin Schram. Aðsend mynd.
Björgvin Schram. Aðsend mynd.

Björgvin Schram hefur tekið við nýrri stöðu forstöðumanns hugbúnaðardeildar hjá Fjölneti og í hluthafahóp Fjölnets.  Björgvin hefur yfir 20 ára reynslu af ráðgjöf og þróun hugbúnaðar í Dynamics Nav bæði hér á landi og erlendis. Síðustu ár hefur Björgvin meðal annars unnið í Bretlandi hjá einu stærsta Navision fyrirtæki heims, þar sem hann tók meðal annars þátt í þróun og uppsetningu á Navision lausnum fyrir Volvo Trucks víðs vegar um Evrópu.

Fjölnet er rótgróið fyrirtæki með mikla þekkingu á sviði samskipta- og upplýsingatækni með staðsetningu á Sauðárkróki og í Reykjavík.   Með nýrri hugbúnaðardeild hjá Fjölneti er verið að auka við vörulínu fyrirtækisins.

/Fréttatilkynning.

Fleiri fréttir