Blásarakvintett Reykjavíkur í Hóladómkirkju
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
01.06.2015
kl. 10.13
Fyrstu sumartónleikarnir verða í Hóladómkirkju sunnudaginn 7. júní kl. 14:00. Blásarakvintett Reykjavíkur verður með vandaða efnisskrá. „Komum heim að Hólum og njótum staðarins og fallegrar tónlistar,“ segir í tilkynningu frá Guðbrandsstofnun.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
