Bríet Lilja og Pétur Rúnar bestu leikmennirnir

Lokahóf meistaraflokka Tindastóls í körfu, unglinga-, drengja- og stúlknaflokks var haldið sl. miðvikudag. Reiddur var fram matur og iðkendur lögðu fram skemmtiatriði. „Var þetta hin fínasta skemmtun en hápunktur kvöldsins var að sjálfsögðu þegar kom að verðlaunaafhendingum,“ segir í fréttatilkynningu en um 70 manns mættu á hófið.  

Eftirtaldir fengu verðlaun:

Stúlknaflokkur:

  • Besta ástundun - Bríet Lilja Sigurðardóttir
  • Mestu framfarir - Hafdís Lind Sigurjónsdóttir
  • Leikmaður ársins - Bríet Lilja Sigurðardóttir

Drengjaflokkur:

  • Besta ástundun - Hlynur Freyr Einarsson
  • Mestu framfarir - Pálmi Þórsson
  • Leikmaður ársins - Hannes Ingi Másson

Unglingaflokkur:

  • Besta ástundun - Sigurður Páll Stefánsson
  • Mestu framfarir - Páll Bárðarson
  • Leikmaður ársins - Viðar Ágústsson

Meistaraflokkur kvenna:

  • Stigahæst - Bríet Lilja Sigurðardóttir
  • Besti varnarmaðurinn - Bríet Lilja Sigurðardóttir
  • Besta ástundun - Helena Þórdís Svavarsdóttir
  • Mestu framfarir - Sunna Þórarinsdóttir
  • Efnilegust - Linda Þórdís Róbertsdóttir
  • Besti leikmaðurinn (kosinn af leikmönnum) - Bríet Lilja Sigurðardóttir

Meistaraflokkur karla:

  • Stigahæstur - Darrel Lewis
  • Besti varnarmaðurinn - Helgi Rafn Viggósson
  • Besta ástundun - Ingvi Rafn Ingvarsson
  • Mestu framfarir - Viðar Ágústsson
  • Efnilegastur - Pétur Rúnar Birgisson
  • Besti leikmaðurinn (kosinn af leikmönnum) - Pétur Rúnar Birgisson

Svavari Atla Birgissyni var afhentur bikar sem stigahæsta leikmanns félagsins frá upphafi í efstu deild og úrslitakeppni 3378 stig.

Svavar lyfti bikarnum og skoðaði hann en skilaði honum svo aftur til formannsins og bað hann um að geyma hann að minnsta kosti í eitt ár í viðbót. Gamli refurinn hefur semsagt ekki sagt sitt síðasta með Tindastól.

Stjórn körfuknattleiksdeildar óskar iðkendum til hamingju með frábært tímabil og  þakkar öllum þeim sem lögðu starfinu lið í vetur fyrir þeirra framlag í vetur. Áfram Tindastóll!,“ segir loks í tilkynningunni.

Ljósmyndir Stefán Jónsson.

Fleiri fréttir