Býður upp á heimafæðingar
Í kjölfar frétta um að fæðingadeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki verði lokað þann 1.apríl n.k. segir Jenný Inga Eiðsdóttir ljósmóðir að hún muni bjóða konum upp á heimafæðingar.
-Ég hef leyfi frá landlækni til að annast konur og taka á móti börnum og ekki er spurt um stað og stund þegar þau kjósa að líta dagsins ljós. Verði fæðandi konum úthýst frá HS mun ég bjóða þeim að taka á móti hjá þeim heima, kjósi þær það, segir Jenný en ýtarlegt viðtal er við hana um málefni fæðinga í Feyki sem kemur út í dag.