Byggingar potast áfram
Það væsir ekki um iðnaðarmenn sem vinna að því að reisa leikskóla og verknámshús á Sauðárkróki, enda veðrið ekki beinlínis verið til stórkostlegs vansa í vetur. Og ekki er annað að sjá en rífandi gangur sé í framkvæmdum.
Eftir því sem Feykir hefur hlerað er stefnt að því að taka leikskólann í notkun síðsumars sem og nýja viðbyggingu við verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Á meðan Ísland og Frakkland áttust við á laugardaginn skaust taugastrekktur ljósmyndari Feykis á rúntinn og myndaði þessi ágætu hús. Frakkarnir unnu samt.