Coro Finlandia og Karlakórinn Heimir halda tónleika í Miðgarði

Finnski karlakórinn Coro Finlandia undir stjórn Henrik Wikström, og karlakórinn Heimir undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar halda tónleika í Menningarhúsinu Miðgarði í dag kl. 17. „Finnar eru þekktir fyrir sönghefð sína, og við Heimismenn hlökkum mikið til þess að hitta þessa finnsku söngbræður okkar,“ segir á heimasíðu Heimismanna.

Aðgangur er ókeypis. Skagfirðinga og nærsveitamenn hvattir til að láta ekki þennan menningarviðburð fram hjá sér fara og mæta með börnin sín.

Fleiri fréttir