Dagur Þór vann lokaverkefni um aukin flakagæði þorsks

Þann 29. apríl síðastliðinn varði Skagfirðingurinn Dagur Þór Baldvinsson lokaritgerð sína í Sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri sem fjallaði um áhrif skurðarhraða og stærðar fisks á flakagæði þorsks. Um er að ræða samstarfsverkefni milli FISK Seafood og Vélfags í Ólafsfirði sem unnið var hjá Iceprotein.
Í fréttatilkynningu frá Iceprotein segir að flakanýting og flakagallar hafa gríðarlega mikil áhrif á framlegð í bolfiskvinnslu.
„Miklar framfarir hafa átt sér stað á síðast liðnum árum í framleiðslu á flökunarvélum með það að markmiði að bæta flakanýtingu og útrýma flakagöllum. Á síðasta ári fór FISK Seafood í samstarf við Vélfag á Ólafsfirði um smíði á flakavél (M720) sem gæti flakað stóran þorsk, þ.e. þorsk á bilinu 4-16 kg. Eftir að vélin hafði verið smíðuð og sett upp í landvinnslu FISK á Sauðárkróki var sett saman verkefni sem hafði það að markmiði að skoða hvaða flökunarhraði myndi skila bestri nýtingu og flakagæðum hverju sinni út frá stærð fisks og skurðarhraða flökunarvélar. Einnig var framkvæmd fylgnigreining á flakagöllum til að sjá hvort tengsl væru á milli flakagalla,“ segir í fréttatilkynningunni.
Skagfirðingurinn Dagur Þór Baldvinsson nemandi í Sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri vann verkefnið hjá Iceprotein undir leiðsögn Dr. Hólmfríðar Sveinsdóttur og Sæmundar Elíassonar kennara við Háskólann á Akureyri.
Rannsóknaspurningar verkefnisins voru:
- Hefur hraði hnífa í M720 flökunarvél frá Vélfagi ehf. áhrif á flakanýtingu og flakagalla?
- Er flakanýting í M720 flökunarvélinni frá Vélfagi ehf. viðunandi miðað við flökunarstaðla?
- Er fylgni á milli einstakra flökunargalla?
- Hversu mikil áhrif hefur mismunandi flakanýting á verðmætasköpun á einu rekstrarári FISK Seafood?
Tilraunin fór fram daga 5. – 6. október, 2015 í landvinnslu FISK Seafood á Sauðárkróki. Mismunandi stórum þorski var skipt upp í tvo þyngdarhópa u.þ.b. 4 kg og u.þ.b. 6 kg. Fyrri daginn var flökunarvélin stillt á tvo mismunandi skurðarhraða, 376,2 m/mín og 303,9 m/mín. Seinni daginn voru sömu stillingar á skurðarhraða en einnig voru aðrar stillingar framkvæmdar eins og víkkun á innri beinastýringu að framan úr 4 mm í 6 mm, gormar á beinastýringunni stífaðir og bil á öllum hnífum aukið. Það er því ekki hægt að gera beinan samanburð á degi 1 og degi 2.
„Helstu niðurstöður úr verkefninu leiddu í ljós að hægt var að finna tengsl á milli flökunargalla tölfræðilega til að sjá hvar ein vanstilling getur leitt af sér tvo flökunargalla. Einnig sýndu niðurstöðurnar að þegar flakagallar voru bornir saman á milli daga kom í ljós að í léttari flokknum fækkaði flökunargöllum martækt á lægri snúningshraða en í þyngri flokknum fækkaði flökunargöllum marktækt á hærri snúningshraða. Flakanýtingin var í lægri kantinum fyrri daginn en batnaði til muna seinni daginn. Verðmætaaukningin fyrir FISK Seafood reiknuð út frá rekstrarári miðað við meðaltals bætingu á flakanýtingu milli daga myndi skila 22,75 milljónum íkr. á ári.
Álykta má út frá niðurstöðum verkefnisins að skurðarhraði hnífa í flökunarvélinni hafi haft áhrif á flakanýting og væri því fróðlegt að framkvæma áframhaldandi rannsóknir til að staðfesta það frekar,“ segir loks í tilkynningunni.
Verkefnið var styrkt af Þróunarsjóði KS.