Davíð Jóhannsson nýr atvinnuráðgjafi hjá SSNV

Gengið hefur verið frá ráðningu Davíðs Jóhannssonar í starf atvinnuráðgjafa hjá SSNV, með áherslu á ferðamál. Davíð tekur til starfa um næstu mánaðarmót og tekur við starfinu af Hildi Þóru Magnúsdóttur. 

Davíð er rekstrarhagfræðingur að mennt með ferðamál sem sérsvið og hefur margra ára reynslu tengda ferðaþjónustu í alþjóða umhverfi. Hann hefur síðustu átt árin leitt og starfað undir merkjum Ferðamálastofu og Íslandsstofu að markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar ferðamanna frá meginlandi Evrópu. Eftir að starfsemi Íslandsstofu í Berlín var lögð niður hefur Davíð lagt stund á nám í verkefnastjórnun til IPMA vottunar.

Fleiri fréttir