Dimma og Stafrænn Hákon á Gærunni

Hljómsveitin Dimma og Stafrænn Hákon verða á meðal tónlistaratriða Gærunnar tónlistarhátíðar á Sauðárkróki 13. – 15. ágúst. „Strákarnir í Dimmu eru Gærugestum kunnugir þar sem þetta er alls ekki fyrsta skipti sem þeir koma og rokka með okkur. Við erum alltaf jafn ánægð að taka á móti þessum snillingum!“ segir í fréttatilkynningu.

Hljómsveitin DIMMA er búin að stimpla sig inn sem ein vinsælasta þungarokkssveit landsins og þeir hafa gefið út 4 hljóðversplötur. Síðasta plata þeirra Vélráð er búin að verma efstu sæti vinsældalista landsins síðan hún kom út í fyrra vor. Tónleikar þeirra eru eftir því, mögnuð upplifun,“

https://youtu.be/RIfvzY3UFdA

Stafrænn Hákon verður einnig á Gærunni en það er tónlistarverkefni Ólafs Josephssonar. „Stafrænn Hákon hefur verin viðloðandi svokallaðan bræðing af sveimkenndu Lo-Fi, síðrokki, gítarsveimi og elektróník. Frá 1999 hefur Ólafur Josephsson, hugmyndasmiður Stafræns Hákons fengist við upptökur heimavið vopnaður verkfærum sem gera honum kleift að fást við tónsmíðar. Hann hefur gefið út nokkrar plötur og er sú nýjasta væntanleg á þessu ári.

Stafrænn Hákon kom fram á Gærunni 2013 og erum við spennt að taka á móti þeim Ólafi og félögum í ágúst.“

https://youtu.be/68r_QIYfEs4?list=PL3884B938234C77F5

Gæruböndin sem búið var að kynna fyrir eru:
Lockerbie, VIO, Óskar Harðar,
Lára Rúnars, The Roulette og Axel Flóvent.

Fleiri fréttir