„Ekkert að grínast með efsta sætið“

Hinni skagfirsk-borgfirski frambjóðandi Vinstri grænna, Rúnar Gíslason, leggur áherslu á að hann sé ekkert að grínast með framboð sitt í 1.-3. sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Ef til vill hefur ekkert framlag í þeirri baráttu hlotið jafnmikla athygli og myndband sem hann deildi á Facebook síðu sinni, sem sýnir hann ganga léttklæddan með skrifborðsstólinn sinn upp á Hafnarfjall.
Þegar þetta er ritað hefur myndband Rúnars fengið tæp tíu þúsund áhorf í gegnum Facebook-síðu hans. Þá hafa visir.is og pressan.is deilt myndbandinu, sem Rúnar gerði með dyggri aðstoð bróður síns.
Frumleg myndbönd hafa verið áberandi í kosningarbaráttu Rúnars, sem og greinaskrif og framboðsfundir. Baráttan nær hámarki um þessar mundir því prófkjörið stendur nú yfir. Endurtaka þurfti prófkjörið og hafa ný framboðsgögn nú verið send úr en ítarlegar leiðbeiningar vegna þeirra er að finna á heimasíðu VG.
Ég stefni á eitt af efstu sætunumÉg er ekkert að grínast með að stefna á eitt af efstu sætunum! Ungt fólk til áhrifa - pólitíkin græðir á fjölbreytileikanum. Ég er tilbúinn til þess að leggja ansi mikið á mig til þess að berjast fyrir mínum málefnum. Forval VG í Norðvesturkjördæmi stendur yfir. Þitt er valið.
Posted by Rúnar Gíslason on Monday, 12 September 2016