Eldur í íbúðarhúsi í Skagafirði
Eldur kviknaði íbúðarhúsi á sveitabænum Ármúla í Skagafirði í dag. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Brunavörnum Skagafjarðar barst tilkynning um brunann kl. 14:18 og var allt tiltækt lið frá Sauðárkróki og Varmahlíð kallað út. Við komu viðbragðsaðila á staðinn var töluverður eldur og mikill reykur en ekki var talið að neinn væri inni í húsinu.
„Slökkvistarf gekk vel og lauk eiginlegu slökkvistarfi á um einni klukkustund. Reykræsting tók lengri tíma. Töluverðar skemmdir urðu vegna elds, hita og reyks,“ segir í tilkynningunni. Vakt var höfð við húsið fram eftir degi.