Eldur í iðnaðarhúsnæði-uppfært

Lögreglunni á Norðurlandi vestra barst tilkynning kl. 14:17 um að eldur væri laus í iðnaðarhúsnæði við Lágeyri á Sauðárkróki. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er slökkvilið og lögregla enn að störfum á vettvangi.  

Uppfært kl. 16:22:

Þegar lögregla kom á vettvang reyndist eldurinn þegar hafa slokknað vegna súrefnisskorts og hafði hann ekki borist í nærliggjandi húsnæði. Um er að ræða miðjurými í nýlegu húsnæði við Lágeyri 3 þar sem þrjár smábátaútgerðir hafa aðstöðu. Eigandi næsta rýmis hafði samband við 112 þegar sót barst upp um sameiginlegt niðurfall sem nær þvert yfir rýmið.

Ljóst er að kviknað hefur í útfrá frystiklefa í rýminu og eru miklar skemmdir af völdum hita og sóts. Eigandinn hafði nýlega komið sér fyrir þarna inni og eru veiðarfæri og ýmis önnur verðmæti sem útlit er fyrir að hafi skemmst mikið.

Fleiri fréttir