Ellefu „framúrskarandi fyrirtæki“ á Norðurlandi vestra

Í fyrradag var formlega tilkynnt hvaða fyrirtæki hefðu komist á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins 2016. Ellefu fyrirtæki á Norðurlandi vestra komust á listann sem í allt telur 642 fyrirtæki eða 1,7% fyrirtækja í landinu sem uppfylltu skilyrði til viðurkenningar.
Fyrirtækin á Norðurlandi vestra eru Ámundakinn ehf. á Blönduósi, Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar ehf. á Skagaströnd, Kaupfélag Skagafirðinga, Fisk Seafood ehf. á Sauðárkróki, Steinull hf. á Sauðárkróki, Vörumiðlun ehf. á Sauðárkróki, Vinnuvélar Símonar ehf. á Sauðárkróki, Ó.K: Gámaþjónusta-sorphirða ehf. á Sauðárkróki, Raðhús ehf. á Sauðárkróki, Friðrik Jónsson ehf. á Sauðárkróki og Steypustöð Skagafjarðar á Sauðárkróki.
Helstu skilyrði sem þarf að uppfylla varða jákvæða niðurstöðu í rekstri, skilyrði um eiginfjárstöðu og skilvísi í viðskiptum. Rétt er að nefna að þetta er vegna rekstrarársins 2015. Viðurkenningarnar voru afhentar á miðvikudaginn.