Fæðuunnin bætiefni úr íslenskum innmat, kirtlum og villtum jurtum- Hópfjármögnun á Karolina Fund

Í gær hófst á netinu hópfjármögnunarátak Pure Natura ehf. en það fer fram á vef Karolina fund www.karolinafund.is. Pure Natura er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki, staðsett á Sauðárkróki og var það stofnað árið 2015 með það að markmiði að framleiða fæðuunnin vítamín og bætiefni úr lamba-innmat, kirtlum og jurtum.
Hjá fyrirtækinu hefur verið unnið að þróun þessara bætiefna í rúm tvö ár og gleðilegt er að segja frá því að tilbúnar eru hjá fyrirtækinu fjórar nýjar vörur sem vonandi verður hægt að hefja framleiðslu á og setja á markað innan skamms.
Til að fjármagna fyrstu framleiðslulotur fyrirtækisins var ákveðið að leita til Karolina fund og efna þar til hópfjármögnunarátaks, en þar gefst öllum sem áhuga hafa á verkefninu tækifæri til þess að tryggja sér vörur úr fyrstu framleiðslulotunni og styðja þannig um leið við þetta áhugaverða frumkvöðlastarf.
Söfnunin stendur yfir til 10.febrúar og er hægt að kynna sér hana betur og taka þátt á síðu verkefnisins hjá Karolina fund.