Ferðabæklingur Skagafjarðar fyrir árið 2016 er kominn út

Sá grái prýðir enn forsíðu Skagafjarðarbæklingsins. Myndina tók snillingurinn Ragnar Th. Sigurðsson en síðan eru liðin mörg ár.
Sá grái prýðir enn forsíðu Skagafjarðarbæklingsins. Myndina tók snillingurinn Ragnar Th. Sigurðsson en síðan eru liðin mörg ár.

Ferðabæklingur Skagafjarðar fyrir árið 2016 kom út nú um miðjan september enda ekki seinna vænna að kynna það sem er í boði fyrir væntanlegum ferðamönnum og -skrifstofum. Það er stórt ár framundan í ferðamennskunni í Skagafirði en það er að sjálfsögðu Landsmót hestamanna sem verður á Hólum sem er þar fyrirferðarmest.

Fulltrúar Skagafjarðar fóru með bæklinginn með sér á VestNorden Travel Mart ferðaráðstefnuna sem að þessu sinni var haldin í Þórshöfn í Færeyjum nú seinni partinn í september. Á VestNorden kynna fulltrúar ferðamennskunnar á Íslandi, Færeyjum og Grænlandi það sem er í gangi hverju sinni fyrir væntanlegum viðskiptavinum.

Bæklingurinn, sem er bæði á íslensku og ensku, er gefinn út í 18 þúsund eintökum og hefur aldrei verið stærri en nú eða heilar 60 síður. Meirihlutinn af innihaldi bæklingsins eru auglýsingar og er nokkuð ljóst þegar flett er í gegnum bæklinginn að uppgangur er í ferðamennskunni í Skagafirði líkt og er um allt land.

Það er Sveitarfélagið Skagafjörður og Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði sem standa fyrir útgáfu bæklingsins en Nýprent sér um uppsetningu og hönnun.

Fleiri fréttir