Feykir og Nýprent á Atvinnulífssýningunni
Það hefur mikið verið að gera í sýningarbás Feykis og Nýprents á Atvinnulífssýningunni á Sauðárkróki í dag. Gígja Glódís Gunnarsdóttir, 8 ára, spreytti sig í fréttamennskunni og skilaði inn þessum texta og myndum:
Þetta er Óli og þarna er líka Sigga. Og þau vinna í Nýprent.
Og vitið þið hvað þetta er? Þetta er Palli.
Svo fylgir gáta sem fólk getur reynt að ráða. Hvað vinna margir í Nýprent?