Feykir og Skotta kvikmyndafjelag kalla eftir ábendingum
Í samvinnu við Skottu kvikmyndafjelag auglýsir Feykir eftir ábendingum um frumkvöðla í atvinnulífi á Norðurlandi vestra til umfjöllunar í nýjum þáttum sem hefja göngu sína í haust.
Sérstök áhersla verður lögð á frumkvöðla og fyrirtæki sem skapa ný og áhugaverð störf fyrir ungt fólk og konur í landshlutanum. Þættirnir verða sendir út á netinu.
Ábendingar berist í netfangið feykir@feykir.is eða í síma 455 7176.